SaltPay
  • Almennir skilmálar
  • Viðskiptaskilmálar SaltPay
  • Persónuvernd
  • Persónuverndarstefna SaltPay
  • Vinnslusamningur SaltPay
  • Vefkökustefna SaltPay
  • Netspjall SaltPay
  • Skilmálar kortafélaga
  • Viðskiptaskilmálar American Express
  • Reglur um birtingu skilmála á netinu um afbókanir og vöruskil
  • Reglur um hótel og gististaði
  • Reglur American Express um bílaleigur
  • Reglur Mastercard um bílaleigur
  • Reglur Visa um bílaleigur
  • Almennt
  • Aðgreind þjónustugjöld
  • Dark mode
  • Reglur American Express um bílaleigur

    last updated: August 30, 2022

    I. Sérstakar reglur American Express um bílaleigur

    Við upphaf leigu bifreiðar má bílaleiga sækja um heimild á kort leigutaka fyrir áætlaðri upphæð leigukostnaðar. Heimild sem veitt er gildir út leigutíma bifreiðar. Áætluð heildarupphæð heimildarbeiðni má ekki innihalda kostnað vegna sjálfsábyrgðar eða mögulegs tjóns. Ef endanlegur leigukostnaður fer umfram upphæð heimildar ber að sækja um nýja heimild fyrir mismuninum.

    Skuldfærsla vegna tjóns og sjálfsábyrgða

    Ef í ljós kemur við skil á bifreið að hún hefur orðið fyrir tjóni á leigutíma má bílaleiga skuldfæra korthafa um upphæð tjónamats að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:

    - Að skuldfærsla vegna tjóns sé aðskilin skuldfærslu vegna leigu eða leigukostnaðar.

    - Að fyrir liggi undirritað samþykki korthafa á skuldfærslu vegna sjálfsábyrgðar (Self risk) mögulegs tjóns. Korthafi þarf að hafa samþykkt tryggingaskilmála bílaleigunnar með undirskrift sinni á sömu blaðsíðu og skilmálarnir eru birtir.

    - Að korthafi hafi undirritað sérstakt skriflegt leyfi fyrir skuldfærslu tjónsins þar sem kortnúmer og upphæð koma fram. Eyðublaðið „Sérstakt skriflegt samþykki fyrir American Express korthafa vegna tjóns“ er hægt að nálgast á www.borgun.is. Leyfið þarf að vera dagsett eftir að tjón hefur átt sér stað. Undirskrift ákvæðis í leigusamningi þar sem áskilinn er réttur leigusala til að skuldfæra korthafa eða greiðslukvittun staðfest með undirskrift eða PIN, uppfyllir ekki skilyrði um skriflegt samþykki fyrir skuldfærslu tjóns.

    - Að sótt hafi verið um heimild fyrir upphæð tjónamatsins eða þeirri upphæð sem korthafi samþykkir.

    - Að upphæð skuldfærslu vegna tjóns sé ekki hærri en upphæðin sem korthafi samþykkti eða hærri en verðmat bifreiðarinnar ef bíllinn telst ónýtur. Skuldfært hafi verið fyrir tjónið innan 90 daga frá skuldfærslu leigugjalds.

    Ef raunkostnaður vegna tjónsins reynist lægri en korthafi var skuldfærður fyrir ber bílaleigu að endurgreiða korthafa mismuninn innan 30 daga.

    Athugasemd vegna kortafærslu

    Ef endurkrafa eða fyrirspurn berst vegna tjóns ber bílaleigu að senda Borgun afrit af eftirfarandi skjölum:

    - Undirrituðum leigusamningi ásamt loka samningi

    - Tjónamati frá viðurkenndu verkstæði

    - Lögregluskýrslu ef við á

    - Samþykkt korthafa fyrir skuldfærslu tjóns

    - Færslukvittun

    - Skilmálum bílaleigu

    Skilmálar

    Skilmála bílaleigu ber að birta korthafa við bókun þjónustu áður en bókun/kaupum á netinu er lokið. Skilmálana ber að birta í sama glugga og bókun/kaup eru staðfest. Óheimilt er að birta skilmála í sér glugga eða á vefslóð. Skilmála ber einnig að senda korthafa í tölvupósti með bókunarstaðfestingu. Skilmála bílaleigu á pappír ber að kynna fyrir korthafa og hann verður að samþykkja með undirskrift sinni á sömu blaðsíðu og skilmálarnir eru tíundaðir.

    Ef korthafi samþykkir tryggingu bílaleigu (CDW) þarf tryggingin að vera staðfest sérstaklega af leigutaka með upphafsstöfum hans, þar sem undirritun leigusamnings tekur ekki til þessa ákvæðis.

    Leigusamningar

    Bílaleiga verður sjálf að sjá til þess að samningar hennar standist kröfur dómstóla, þar sem í sumum tilfellum er það eina úrræði bílaleigu til að innheimta kostnað vegna tjóns bílaleigubifreiðar.

    Ef nánari upplýsinga er óskað vinsamlega hafið samband við Þjónustuver SaltPay í síma 560 1600 eða sendið tölvupóst á help@saltpay.co.

    Ofangreind atriði eru unnin eftir reglum frá American Express og geta tekið breytingum eftir útgáfu þessa bréfs.

    © 2023 SaltPay Co.