Lagalegur fyrirvari vegna netspjall SaltPay IIB hf.
Netspjall SaltPay IIB hf. ("SaltPay") er eingöngu ætlað fyrir almennar fyrirspurnir og aðstoð við viðskiptavini félagsins.
SaltPay hefur skuldbundið sig til að vernda og virða friðhelgi þína. Öll persónuleg gögn sem deilt er í netspjalli SaltPay verða einungis unnin að því marki sem nauðsynlegt er til að veita þá aðstoð sem óskað er eftir í samræmi við persónuverndarstefnu félagsins og vefkökustefnu félagsins.
Notendum netspjallsins er bent á að senda aldrei viðkvæmar persónuupplýsingar af neinu tagi í gegnum netspjallið, svo sem lykilorð, fjárhagsupplýsingar eða greiðslukortaupplýsingar.
Starfsfólk SaltPay getur ekki afhent persónuupplýsingar af neinu tagi í gegnum netspjallið, svo sem fjárhagslegar upplýsingar, greiðslukortaupplýsingar eða lykilorð. Óheimilt er að endurbirta þær upplýsingar sem fram koma í netspjalli, dreifa þeim, fjölfalda eða afrita þær með nokkrum hætti. Þá er jafnframt óheimilt að birta ólögmætt eða ósæmilegt efni í netspjalli SaltPay. Öll misnotkun notenda af þessu tagi á netspjallinu kann að varða við lög.
SaltPay ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum sem birtar eða afhentar eru í gegnum netspjall félagsins, né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á netspjalli félagsins. Þá ber SaltPay ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til þess að ekki er hægt að nota netspjall, um skemmri eða lengri tíma.
Öll samskipti sem eiga sér stað í netspjalli SaltPay eru varðveitt í ákveðinn tíma af félaginu í öryggis- og eftirlitstilgangi sem og í þágu net- og upplýsingaöryggis í samræmi við persónuverndarstefnu félagsins. Notandi netspjalls SaltPay getur óskað eftir að fá afrit af samskiptunum.